Fotbolti.net
05.05.18 - 13:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Shawcross: Við munum koma til baka

,,Höfum ekki verið nægilega góðir allt tímabilið

Shawcross bugaður í leikslok.

Shawcross bugaður í leikslok.

Canon

Mynd: Getty Images

Ryan Shawcross, fyrirliði Stoke, var auðvitað miður sín þegar hann mætti í viðtöl eftir leikinn gegn Crystal Palace í dag. Stoke tapaði leiknum 2-1 og er fallið úr ensku úrvalsdeildinni.

Sjá einnig:
England: Stoke fallið úr ensku úrvalsdeildinni (Staðfest)
„Auðvitað er erfitt að taka þessu en þetta var ekki bara þessi leikur, þetta er allt tímabilið og við höfum ekki verið nægilega góðir allt tímabilið,\" sagði Shawcross.

„Að lokum er þetta undir leikmönnunum komið; við höfum ekki verið nægilega góðir.\"

„Stuðningsmennirnir hafa verið stórkostlegir. Úrslitin eru slæm en þeir styðja okkur áfram.\"

„Þetta er frábært félag og við munum koma til baka.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.