Fotbolti.net
05.05.18 - 10:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Vestri fær leikmann sem ólst upp hjá Man Utd (Staðfest)

Josh Signey.

Josh Signey.

Canon

Mynd: Vestri

Vestri og Josh Signey hafa komist að samkomulagi um að Josh spili með Vestra í sumar.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á <a href=\"https://www.vestri.is/knattspyrna/Josh_Signey_gengur_til_lids_vid_Vestra/\" target=\"_blank\">heimasíðu félagsins</a>.
Josh spilaði með akademíu Manchester United til 19 ára aldurs en þá fór hann yfir í bandaríska háskólaboltann.

Hann er löglegur fyrir leik Vestra gegn Leikni F. í 1. umferð 2. deildar í dag. Hann mun væntanlega láta til sín taka á miðsvæðinu þar sem hans stöðu er að finna.

Vestra er spáð 3. sæti í 2. deild sem hefst í dag.

Leikir dagsins:
13:15 Þróttur - Vogum - Huginn (Vogabæjarvöllur)
14:00 Höttur - Víðir (Fellavöllur)
14:00 Grótta - Tindastóll (Gróttuvöllur)
14:00 Leiknir F. - Vestri (Fjarðabyggðarhöllin)
16:00 Völsungur - Afturelding (Húsavíkurvöllur)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.