05.05.19 - 10:45
Ívan Guðjón Baldursson
Ribery yfirgefur Bayern í sumar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
FC Bayern er búið að staðfesta þær fregnir að Franck Ribery mun ekki skrifa undir nýjan samning við félagið og verður því samningslaus í sumar, eftir 12 ár hjá þýska stórveldinu.
Ribery er 36 ára gamall kantmaður sem hefur skorað 123 mörk í 422 keppnisleikjum frá komu sinni til Bayern. Hann hefur alltaf verið iðinn við markaskorun og stoðsendingar en tókst aldrei að jafna markametið frá sínu fyrsta tímabili hjá félaginu, þegar hann skoraði 19 mörk í öllum keppnum.
Hann skoraði þá 16 sinnum í 81 leik fyrir franska landsliðið frá 2006 til 2014.
„Þegar ég gekk í raðir Bayern þá var það draumur að rætast. Það verður ekki auðvelt að kveðja en ég mun aldrei gleyma því sem við afrekuðum saman," sagði Ribery.
Arjen Robben mun einnig yfirgefa félagið á frjálsri sölu í sumar en sú ákvörðun var staðfest í fyrra. Robben og Ribery náðu mjög vel saman og byrjuðu oftar en ekki á sitthvorum kantinum. Þeir eru gjarnan kallaðir 'Robbery'.