Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 05. maí 2021 18:35
Ívan Guðjón Baldursson
England: Chelsea með aðra hönd á titlinum
Mynd: Getty Images
Tottenham 0 - 2 Chelsea
0-1 Sam Kerr ('41)
0-2 Sam Kerr ('53)

Ástralska landsliðskonan Sam Kerr gerði bæði mörkin er Chelsea lagði Tottenham að velli í grannaslag í efstu deild kvenna á Englandi.

Liðin mættust í næstsíðustu umferð deildartímabilsins og er Chelsea aðeins einum sigri frá ofurdeildartitlinum.

Chelsea á heimaleik gegn Reading á sunnudaginn í lokaumferðinni og tryggir sér titilinn með sigri. Manchester City er í öðru sæti, tveimur stigum á eftir. Arsenal kemur svo í þriðja og Manchester United í fjórða.

Kerr er markahæst í deildinni með 20 mörk og 6 stoðsendingar.
Athugasemdir
banner