05.06.18 - 18:18
Ívan Guðjón Baldursson
Fredericks til West Ham (Staðfest)

Fredericks er hér ásamt Matt Targett og Cyrus Christie eftir sigur gegn Aston Villa í úrslitaleik umspilsins.

Mynd: Getty Images

West Ham er búið að staðfesta komu enska hægri bakvarðarins Ryan Fredericks til félagsins.
Fredericks er 25 ára gamall og kemur frítt frá Fulham þegar samningur hans rennur út í lok júní.

Fredericks er fyrsti leikmaðurinn sem Hamrarnir kaupa frá komu Manuel Pellegrini í stjórastólinn.
„Mér finnst frábært að fara til West Ham. Þetta er eitt af stærstu félögum úrvalsdeildarinnar. Allir þekkja sögu West Ham,\" sagði Fredericks.
„Það eru margar ástæður fyrir að skrifa undir hjá West Ham. Það vita allir hvers Manuel Pellegrini er megnugur, ég get lært mikið af honum.\"
Fredericks spilaði 48 af 52 leikjum Fulham á nýliðnu tímabili og var valinn í lið ársins í Championship deildinni. Fulham komst upp í úrvalsdeildina gegnum umspilið.