Fotbolti.net
05.06.19 - 15:56
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin

Buffon hættur hjá PSG (Staðfest)

Buffon er hættur og leitar nú að öðrum ævintýrum.

Buffon er hættur og leitar nú að öðrum ævintýrum.

Canon

Mynd: Getty Images

PSG í Frakklandi tilkynnti í dag að ítalski markvörðurinn Gianluigi Buffon sé hættur hjá félaginu. Leikmaðurinn er væntanlega á leið til Ítalíu að nýju en hann segir ævintýri sín utan heimalandsins séu á enda.
„Í kjölfar viðræðna hafa Paris Saint Germain og Giuanluigi Buffon komist að samkomulagi um að framlengja ekki samning goðsagnarinnar sem rennur út 30. júní 2019," sagði í yfirlýsingu franska félagsins.

„Það er mikill heiður fyrir Paris Saint Germain að hafa haft besta markvörð í sögu fótboltans hjá félaginu. Markvörður sem vann HM 2006 og hefur fengið fjölda einstaklingsverðlauna síðan ferill hans hófst. Félagið óskar hinum ógleymanlega Gigi alls hins besta í þeim verkefnum sem bíð hans."

Buffon sendi svo sjálfur frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagðist ekki hafa geta sætt sig við þann samning sem PSG bauð honum og því muni hann leita á önnur mið en ævintýri hans utan Ítalíu séu á enda.

Heimild: Football-Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.