Fotbolti.net
05.06.19 - 20:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jota til Aston Villa (Staðfest)

Jota í baráttunni við Jack Grealish í vetur.

Jota í baráttunni við Jack Grealish í vetur.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa er byrjað að styrkja sig fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni. Í dag festi liðið kaup á Jota. Jota kemur frá grönnum Villa, Birmingham.

Jota er kantmaður sem skoraði átta mörk í 72 leikjum fyrir Birmingham. Jota er Spánverji sem er uppalinn hjá Celta Vigo.

Verðmiðinn er óuppgefinn en einhverjir miðlar tala um að Jota kosti Villa um fjórar milljónir punda. Á sama tíma yfirgefur Gary Gardner herbúðir Aston Villa og gengur í raðir Birmingham.
Jota skrifar undir tveggja ára samning við Villa.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.