Albert Guðmundsson, leikmaður AZ Alkmaar, gæti spilað í Pepsi Max-deildinni í sumar samkvæmt heimildum mbl.is.
Búið er að aflýsa hollensku úrvalsdeildinni og óvíst er hvenær boltinn byrjar að rúlla aftur þar.
Samkvæmt frétt MBL hafa félög í Pepsi Max-deildinni sýnt áhuga á að fá Albert á láni í sumar.
Hinn 22 ára gamli Albert spilaði einungis fjóra leiki í hollensku úrvalsdeildinni í vetur en hann var frá í langan tíma vegna fótbrots.

Albert er uppalinn hjá KR en Breiðablik hefur einnig verið nefndur sem hugsanlegur áfangastaður samkvæmt frétt mbl.is.
Albert hefur spilað ellefu leiki með íslenska landsliðinu á ferli sínum og skorað þrjú mörk.
Athugasemdir