Fotbolti.net
05.06.21 - 21:50
Victor Pálsson

Segja að Trippier vilji ganga í raðir Man Utd

Segja að Trippier vilji ganga í raðir Man Utd
Canon

Mynd: Getty Images

Kieran Trippier, leikmaður Atletico Madrid, vill ganga í raðir Manchester United í sumarglugganum.
Það er Mirror sem greinir frá þessu en Trippier hefur verið orðaður við Man Utd síðustu daga.

Englendingurinn átti gott tímabil með Atletico þar sem liðið fagnaði deildarmeistaratitlinum á Spáni.

Trippier er fyrrum leikmaður Tottenham en hann lék 69 deildarleiki fyrir félagið frá 2015 til 2019.

Hægri bakvörðurinn á einnig að baki 27 landsleiki fyrir England og hefur staðið sig með prýði í spænsku deildinni.

Samkvæmt Mirror hefur Trippier sagt liðsfélögum sínum í enska landsliðinu að hann vilji komast aftur heim.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.