Davíð Smári Lamude var kátur eftir stórsigur Njarðvíkur á ÍR í Lengjudeildinni í kvöld, þar sem lokatölur urðu 5-1.
Lestu um leikinn: Njarðvík 5 - 1 ÍR
Njarðvík er með 11 stig eftir 8 umferðir og er þetta þriðji sigur liðsins á deildartímabilinu.
„Við vorum hungraðir í dag gegn sterkum andstæðingum. Við vörðumst vel og sköpuðum helling af færum sem er mjög jákvætt. Við erum að fá mikilvæga menn aftur í leikform," sagði Davíð Smári sem nafngreindi svo nokkra leikmenn sem hann taldi skara framúr í sigrinum.
„Við töluðum um það fyrir leikinn aðeins að við höfum verið með óþægilega líkamstjáningu þegar illa gengur og við þurfum að breyta því. Við töluðum um fyrir leikinn að nýta slæm augnablik sem tækifæri til að sýna karakter og við gerðum það í dag."
Davíð Smári áttar sig á því að það er ennþá löng leið framundan fyrir Njarðvíkinga ef þeir ætla sér að berjast um sæti í Bestu deildinni fyrir næstu leiktíð. Lengjudeildin er mjög erfið deild og eru Njarðvíkingar einbeittir að einum leik í einu.
„Það er mikið pláss fyrir bætingar og við megum ekki verða saddir. Við þurfum alltaf að vinna að því að verða betri og núna verðum við að einbeita okkur að næsta leik."
05.06.2026 21:30
Lengjudeildin: Afturelding tapaði - Njarðvík skoraði fimm























