PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hefur trú á að Þór/KA rífi sig upp - „Ótrúlega dýrmætt fyrir klúbbinn"
Eimskip
Sandra María fagnar marki með Þór/KA.
Sandra María fagnar marki með Þór/KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arna Sif Ásgrímsdóttir.
Arna Sif Ásgrímsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA hefur byrjað keppnistímabilið afar illa og situr á botni Bestu deildarinnar í landsleikjahléinu með aðeins tvö stig þegar sjö umferðir eru búnar.

Landsliðskonan Sandra María Jessen er goðsögn í Þorpinu og hún hefur trú á því að sínar konur muni fljótlega sýna sitt rétta andlit.

„Þetta hefur verið smá brekka í byrjun," sagði Sandra María þegar hún ræddi við Fótbolta.net í landsliðsverkefni í Kraká. Hún spilar í dag með Köln í Þýskalandi.

„En það eru bara sjö umferðir búnar. Ég hef trú á mínum stelpum fyrir norðan, að þær muni taka sig aðeins saman og ná í betri úrslit."

„Ég held að það sé margt gott að gerast þarna, þær þurfi bara aðeins meiri tíma. Auðvitað hefði maður samt viljað fleiri stig eftir sjö umferðir."

Arna Sif Ásgrímsdóttir er mætt aftur heim í Þór/KA og það gleður Söndru.

„Það er bara frábært. Hún er algjör lykilmaður og leiðtogi. Ég veit að öll lið í deildinni væru til í að hafa leikmann eins og hana. Það er ótrúlega dýrmætt fyrir klúbbinn að hafa hana á Akureyri, ekki síst í smá brekku. Hún er karakter til að hjálpa liðinu að snúa þessu við," sagði Sandra María.
Slapp
banner
banner