PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
„Var að reka á eftir hlutum sem hún á ekkert að vera að reka á eftir“
Thelma eftir fyrsta landsliðsmarkið: Ég er smá fúl samt
Talar um „ógeðslegan leik" - Þarf betri ramma um nýju reglurnar
Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“
Sævar Atli ræðir brottrekstur Freys - „Fengum ekki að kveðja hann“
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
   fös 05. júní 2026 23:17
Sigurjón Árni Torfason
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Lengjudeildin
Nemanja Pjevic aðstoðarþjálfari Leiknis
Nemanja Pjevic aðstoðarþjálfari Leiknis
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Brynjar Björn í skammarkróknum
Brynjar Björn í skammarkróknum
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Leiknir Reykjavík heimsótti Ægi í Þorlákshöfn fyrr í kvöld í 8. umferð Lengjudeildar karla. Leiknum lauk með 3–0 sigri gestanna.

Nemanja Pjevic, aðstoðarþjálfari Leiknis, stýrði liðinu í fjarveru Brynjars Björns, sem sat af sér leikbann eftir rautt spjald gegn HK í síðustu umferð.


Lestu um leikinn: Ægir 0 -  3 Leiknir R.

Leikurinn var í járnum framan af og lítið sem ekkert gerðist en síðan tóku Leiknismenn yfir á níu mínútna kafla í seinni hálfleik og skoruðu þrjú mörk.

„Það er svolítið þannig að þegar maður bíður eftir strætó, þá koma þeir allt í einu þrír í einu. Það breyttist í raun ekki neitt, við komum bara inn í hálfleik og töluðum um að gera meira af því sem við höfðum æft og lagt upp með. Ægisliðið er þannig að þeir eru mjög flottir og þéttir til baka. Þegar fyrsta markið slefaði inn opnuðust þeir aðeins og þá, eins og þú sást, opnaðist allt og tvö mörk til viðbótar fylgdu í kjölfarið.“  sagði Nemanja við Fótbolti.net eftir leik.

Leiknismenn mættu mun sterkari og tilbúnari til leiks í seinni hálfleik en Ægir.

„Það er alveg kafli þarna á milli, frá tíundu mínútu og fram að þeirri sjötugustu, þegar við skorum þessi þrjú mörk, þar sem við erum aðeins of mikið í bara einhverju. Við þurfum að laga það en þetta er mjög jákvætt.“ 


Slapp