PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 09:47
Kári Snorrason
Sjáðu stjörnum prýdda HM auglýsingu Nike: Palmer ekki valinn en í stóru hlutverki
Palmer var ekki valinn í HM hóp Englendinga.
Palmer var ekki valinn í HM hóp Englendinga.
Mynd: EPA
Það var engu til sparað í auglýsingu Nike fyrir komandi heimsmeistaramót, þar sem stærstu stjörnur fótboltans og Bandaríkjanna komu saman.

Cristiano Ronaldo, Kylian Mbappe, Vinicius Junior og Virgil van Dijk eru á meðal þeirra sem koma fram í auglýsingunni, sem ber heitið Rip the Script og er sex mínútna löng.

Þá má einnig sjá LeBron James, Kim Kardashian og tónlistarmanninn Travis Scott.

Sá sem stelur senunni er þó Cole Palmer, fulltrúi Englands í auglýsingunni, sem kemur fram í landsliðsbúningi Englands og fær sinn eigin kafla. En Palmer var ekki valinn í 26 manna HM hóp Thomas Tuchel.

Netverjar furðuðu sig því margir á þátttöku Palmer í auglýsingunni og töldu hana vera vandræðalega fyrir bæði Nike og leikmanninn sjálfan.




Slapp
banner