05.07.17 - 13:40
Elvar Geir Magnússon
Coentrao í Sporting Lissabon (Staðfest)

Fabio Coentrao hefur leikið 51 landsleik fyrir Portúgal.

Mynd: Getty Images

Fabio Coentrao hefur leikið 51 landsleik fyrir Portúgal.

Mynd: Getty Images
Fabio Coentrao, varnarmaður Real Madrid, hefur gengið í raðir Sporting Lissabon á lánssamningi frá Real Madrid.
Þessi 29 ára leikmaður, fyrrum leikmaður Benfica, vonast til að koma ferlinum aftur á skrið.
Coentrao lék aðeins sex leiki fyrir Real á síðasta tímabili.
Hann vann portúgalska meistaratitilinn með Benfica áður en hann gekk í raðir Real 2011.
Hann var fastamaður fyrir Real 2011-13 en svo fór spilmínútunum fækkandi.

Muito feliz por ter a oportunidade de jogar neste grande clube pic.twitter.com/pLjty4mc8k
— Fabio Coentrao (@Fabio_Coentrao) July 5, 2017