Fotbolti.net
05.07.17 - 09:18
Elvar Geir Magnússon

Guðlaugur Victor til FC Zurich (Staðfest)

Guðlaugur Victor (til hægri) á 6 A-landsleiki.

Guðlaugur Victor (til hægri) á 6 A-landsleiki.

Canon

Mynd: KSÍ

Miðjumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við svissneska félagið Zurich.

Guðlaugur Victor er 26 ára.
Á dögunum var greint frá því að Guðlaugur Victor myndi fara frá Esbjerg í Danmörku eftir fall liðsins úr úrvalsdeildinni þar í landi. Hann var fyrirliði liðsins.

FC Zurich vann B-deildina í Sviss á síðasta tímabili og leikur því í efstu deild á komandi tímabili. Félagið á sér þó langa sögu og hefur unnið svissnesku deildina tólf sinnum, síðast 2009.

Guðlaugur Victor kom til danska félagsins frá Helsingborg í Svíþjóð árið 2015 en á ferlinum hefur Guðlaugur Victor einnig leikið erlendis með varaliði Liverpool, Hibernian, New York Red Bulls og NEC Nijmegen.

Einn Íslendingur var fyrir í svissneska boltanum en það er Rúnar Már Sigurjónsson leikmaður Grasshopper.
Guðlaugur Victor til FC Zurich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.