05.07.17 - 13:03
Elvar Geir Magnússon
Huddersfield kaupir Steve Mounie á metfé (Staðfest)

Mounie er mættur í enska boltann.

Mynd: Getty Images

Mounie er mættur í enska boltann.

Mynd: Getty Images
Nýliðarnir í Huddersfield Town hafa fengið framherja til að styrkja liðið fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni.
Það er Steve Mounie sem kemur frá Montpellier. Kaupverðið er sagt 11,5 milljónir punda sem gerir hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins.
Þetta er reyndar í fjórða sinn sem Huddersfield borgar metfé fyrir leikmann í sumar.

Mounie er 22 ára og er bæði með vegabréf frá Frakklandi og Benín. Hann skoraði 14 mörk í frönsku deildinni á síðasta tímabili. Kaupin á honum voru staðfest í dag.
Í gær kom Tom Ince til Huddersfield frá Derby.
Huddersfield hefur einnig eytt 3,5 milljónum punda í belgíska sóknarmanninn Laurent Depoitre og 8 milljónum punda var eytt í að breyta lánssamningi Aaron Mooy frá Manchester City í endanlegan samning.
David Wagner, stjóri Huddersfield, fer fögrum orðum um Steve Mounie á heimasíðu félagsins.
„Ég er í skýjunum með að fá hann. Hann er með líkamlegan styrk og ætti að smellpassa í úrvalsdeildina. Við höfum hitt hann og hann er frábær karakter. Hann er með mikla reynslu, bæði úr lífinu og boltanum. Þetta er leikmaður sem getur bætt sig enn frekar,\" segir Wagner.