05.07.17 - 16:04
Magnús Már Einarsson
Lacazette til Arsenal á metfé (Staðfest)

Mynd: Arsenal

Mynd: Arsenal
Arsenal hefur gengið frá kaupum á framherjanum Alexandre Lacazette.
Lacazette kemur til Arsenal á 45 milljónir punda en kaupverðið getur hækkað upp í 52 milljónir punda síðar meir.
Lacazette kemur til Arsenal á 45 milljónir punda en kaupverðið getur hækkað upp í 52 milljónir punda síðar meir.
Hann er þar með dýrasti leikmaðurinn í sögu Arsenal en fyrra metið var 42,4 milljónir punda sem félagið borgaði fyrir Mesut Özil þegar hann kom frá Real Madrid árið 2013.
Hinn 26 ára gamli Lacazette var næstmarkahæstur í frönsku úrvaldeildinni á síðasta tímabili með 28 mörk.
Lacazette á ellefu landsleiki að baki með Frökkum en hann skrifaði undir fimm ára samning við Arsenal.

You’ll never guess who… 😉 pic.twitter.com/4Owx2Bg17i
— Arsenal FC (@Arsenal) July 5, 2017