Fotbolti.net
05.07.17 - 09:52
Magnús Már Einarsson

Messi samþykkir nýjan samning við Barcelona (Staðfest)

Magnaður.

Magnaður.

Canon

Mynd: Getty Images

Lionel Messi hefur samþykkt nýjan samning við Barcelona sem gildir til ársins 2021.

Spænska félagið staðfesti þetta í dag en Messi skrifar undir þegar hann snýr aftur til Barcelona eftir brúðkaupsferð sína.

Messi hefur verið hjá Barcelona frá 13 ára aldri og hann hefur heldur betur skrifað nafn sitt í sögubækur félagsins.

Hinn þrítugi Messi hefur skorað 507 mörk í 583 leikjum með Barcelona á ferlinum.

Hann hefur meðal annars orðið átta sinnum spænskur meistari og fjórum sinnum unnið Meistaradeildina.

#Messi2021
+ Messi
+ Fútbol
+ Barça
+ Historia pic.twitter.com/ht7jvTH1ZV

— FC Barcelona (@FCBarcelona_es) July 5, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.