05.07.17 - 18:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Theo fer frá Atletico til Real Madrid (Staðfest)
Fyrsti leikmaðurinn í 17 ár sem skiptir á milli Madrídarliðanna

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Theo Hernandez er genginn í raðir Real Madrid. Þetta eru mjög athyglisverð félagsskipti þar sem hann kemur til Evrópumeistaranna frá nágrönnunum í Atletico Madrid.
Hinn 19 ára gamli Theo verður tilkynntur á heimavelli Real Madrid, Santiago Bernabeu, á mánudag. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp, en talið er að það sé í kringum 26 milljónir evra.

Hernandez spilaði ekki aðalliðsleik fyrir Atletico, en spilaði gríðarlega vel á láni hjá Deportivo Alaves á síðustu leiktíð.
Hann er núna búinn að skrifa undir sex ára samning við Real Madrid.
Hann er fyrsti leikmaðurinn sem skiptir á milli Real Madrid og Atletico Madrid síðan Santiago Solari gerði það árið 2000.
Á heimasíðu Atletico kemur fram að leikmaðurinn hafi margoft hafnað nýjum samningstilboðum og tilboðum frá öðrum liðum, hans helsti draumur hafi verið að spila fyrir nágranna Atletico í Real Madrid. Nú er draumurinn orðinn að veruleika.

🌪 @theo3_theo is a @realmadriden player! 🌪
— LaLiga (@LaLigaEN) July 5, 2017
Here\'s a glimpse of what the Bernabeu can expect from Theo Hernandez next season! 👇 pic.twitter.com/s2Z4I02enL