05.07.18 - 20:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ben Foster kominn í Watford (Staðfest)

Mynd: Watford

Mynd: Watford
Markvörðurinn Ben Foster er genginn í raðir Watford frá West Brom. Þetta var tilkynnt í kvöld.
Foster gerði West Brom það ljóst að hann vildi fara frá félaginu eftir að það féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Foster er 35 ára gamall en hann er að snúa aftur til Watford eftir að hafa leikið með félaginu frá 2005-2007 á lánssamningi frá Manchester United. Hann er búinn að vera hjá West Brom frá 2012.
Kaupverðið er ekki gefið upp en talið er að það sé í kringum 4 milljónir punda. West Brom var fyrst að biðja um 10 milljónir punda en fór niður í verðmiðanum þegar Sam Johnstone var keyptur frá Manchester United sem staðgengill Foster.
Foster skrifaði undir tveggja ára samning við Watford.
Fyrr í kvöld gekk Watford frá kaupum Ken Sema frá Östersund.