05.07.18 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sema frá skíðabænum Östersund til Watford (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn Ken Sema er búinn að skrifa undir fimm ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Watford. Sema er sænskur og kemur til Watford frá Östersund.
Östersund komst í fréttirnar á síðasta tímabili þegar liðið stóð í Arsenal í Evrópudeildinni.
Sema, sem er 24 ára, skoraði sigurmark Östersund í 2-1 sigri Östersund á Emirates-leikvanginum.
Sema spilaði í heildina 84 leiki fyrir Östersund á tveimur og hálfu ári hjá félaginu.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem kemur til Watford í sumar á eftir varnarmönnunum Adam Masina og Marc Navarro. Ben Foster, markvörður West Brom, er einnig sagður á leiðinni.