„Þetta eru tvö töpuð stig," sagði Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, eftir markalaust jafntefli gegn Grindavík í Pepsi Max-deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 0 Grindavík
„Við viljum vinna alla leiki á heimavelli og sérstaklega þegar við erum mikið með boltann og erum að skapa helling, skapa góðar stöður, en ná ekki að skora. Þá er það svekkjandi."
Bæði lið töldu sig hafa skorað í þessum leik. Stjarnan í fyrri hálfleik þegar mark var dæmt af liðinu vegna hendi á Guðmund Stein Hafsteinsson og Grindavík í seinni hálfleik er spurning var um það hvort boltinn fór yfir línuna eða ekki.
„Ég bara veit það ekki, þetta gerðist svo hratt," sagði Haraldur um atvikið þegar Grindavík taldi sig hafa skorað. „Þetta gerðist á sekúndubrotum og hvort að allur boltinn hafi verið inni eða brot af honum á línunni. Við þurfum að hafa VAR og þá hefðum við örugglega fengið mark í fyrri hálfleik eða eitthvað af þessum hendum sem strákarnir voru að öskra á."
Halli Björns kallar eftir VAR í íslenska boltanum, en viðtalið er í heild sinni hér að ofan. Haraldur eignaðist sitt fyrsta barn í gær. Fótbolti.net sendir sínar hamingjuóskir!






















