Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 05. júlí 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Noregur: Ari lék allan leikinn í jafntefli
Ari Leifsson
Ari Leifsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stromsgodset tók á móti Valerenga í norksu úrvalsdeildinni í gær. Liðin eru á sitthvorum enda töflunnar.

Ari Leifsson lék allan leikinn fyrir Stromsgodset en Valdimar Ingimundarson sat allan tíman á varamannabekknum. Viðar Örn Kjartansson var ekki í leikmannahópi Valerenga vegna meiðsla.

Fred Friday kom Stromsgodset yfir með marki eftir 20 mínútna leik og þannig var staðan í hálfleik.

Henrik Bjordal jafnaði metin fyrir Valerenga og tryggði þar með stigið fyrir þá.

Þessi úrslit voru vonbrigði fyrir Valerenga sem sitja á 3. sæti deildarinnar með 20 stig eftir 12 leiki en Stromsgodset er með 12 stig eftir 10 leiki í 12. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner