Fotbolti.net
05.08.16 - 20:36
Ívan Guðjón Baldursson

Djilobodji fyrstu kaup Moyes hjá Sunderland (Staðfest)

Djilobodji fyrstu kaup Moyes hjá Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

David Moyes er búinn að ganga frá fyrstu kaupum sínum sem knattspyrnustjóri Sunderland.

Þau eru á miðverðinum Papy Djilobodji sem kemur frá Chelsea fyrir 8 milljónir punda og skrifar undir fjögurra ára samning.
Djilobodji getur einnig spilað sem afturliggjandi miðjumaður en hann er 27 ára gamall senegalskur landsliðsmaður.

Varnarmaðurinn var lánaður til Werder Bremen í janúar og lék lykilhlutverk í fallbaráttunni þar sem hann skoraði meðal annars sigurmarkið sem hélt félaginu uppi, á 88. mínútu á lokadegi tímabilsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.