Fotbolti.net
05.08.16 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Frá Mongólíu til Fjarðabyggðar (Staðfest)

Sveinn Sigurður verður ekki meira með Fjarðabyggð í sumar.

Sveinn Sigurður verður ekki meira með Fjarðabyggð í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Fjarðabyggð hefur fengið markvörðinn Uros Poljanec í sínar raðir fyrir síðari hlutann í Inkasso-deildinni.

Uros er 22 ára gamall Slóveni en hann spilaði síðast með Khoromkhon í Mongólíu.

Félagaskiptin voru send út áður en félagaskiptaglugginn á Íslandi lokaði á sunnudag en Uros fékk síðan leikheimild í dag.

Uros kemur til Fjarðabyggðar til að fylla skarðið sem Sveinn Sigurður Jóhannesson skilur eftir sig. Sveinn meiddist illa á dögunum en hann hafði verið í láni hjá Fjarðabyggð frá Stjörnunni.
Uros getur spilað sinn fyrsta leik með Fjarðabyggð á morgun þegar liðið mætir Keflavík. Í gær kom framherjinn Dimitrov Zelkjo til Fjarðabyggðar og hann gæti líka spilað sinn fyrsta leik á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.