05.08.16 - 11:01
Elvar Geir Magnússon
- LaugardalHelgi Kolviðs aðstoðarmaður Heimis (Staðfest)

Helgi Kolviðsson er kominn inn í þjálfarateymi Íslands. Hér er hann þegar hann var kynntur í dag ásamt Heimi Hallgrímssyni þjálfara, Geir Þorsteinssyni formanni KSÍ og Guðmundi Hreiðarssyni markmannsþjálfara.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Kolviðsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, hefur verið staðfestur sem nýr aðstoðarlandsliðsþjálfari. Hann verður aðstoðarmaður Heimis Hallgrímssonar.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, greindi frá þessu á fréttamannafundi nú rétt í þessu.
„Helga þekki ég sjálfur af góðu einu. Bæði sem leikmaður hér heima og með landsliðinu,\" sagði Geir á fréttamannafundi í dag.

Helgi var meðal þeirra þjálfara sem aðstoðuðu Heimi og Lars Lagerback á Evrópumótinu í Frakklandi. Hann hefur þjálfað í Austurríki og neðri deildum Þýskaland en á sínum tíma spilaði hann 30 landsleiki fyrir Ísland á árunum 1996-2003.
Mánuður er í að Ísland leikur sinn fyrsta leik í undankeppninni fyrir HM 2018 en liðið mætir þá Úkraínu ytra. Í riðlinum eru einnig Finnland, Tyrkland, Króatía og Kosóvó.
Í dag var einnig tilkynnt að Guðmundur Hreiðarsson verður áfram markmannsþjálfari íslenska landsliðsins. Nýr þýskur styrktarþjálfari kemur einnig inn í þjálfarateymið að ósk Heimis.
Samningur Heimis og Helga eru út undankeppni HM og þeir stýra liðinu einnig í lokakeppninni í Rússlandi ef það kemst þangað.