05.08.16 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Króatískur framherji í Leikni F. (Staðfest)

Leiknismenn fagna marki.

Mynd: Raggi Óla

Leiknismenn fagna marki.

Mynd: Raggi Óla
Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið króatíska framherjann Anto Pejic í sínar raðir.
Félagaskiptin voru send út áður en félagaskiptaglugginn á Íslandi lokaði á sunnudag en Anto fékk síðan leikheimild í dag.
Anto getur því leikið sinn fyrsta leik þegar Leiknir fær Grindavík í heimsókn á morgun.

Anto er hávaxinn en hann spilaði síðast með Hammerfest FK í norsku D-deildinni.
Hann á að hjálpa Leiknismönnum í fallbaráttunni í Inkasso-deildinni en liðið er í botnsætinu í augnablikinu.