Fotbolti.net
05.08.16 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Sevilla fær argentínskan landsliðsmann (Staðfest)

Mercado í úrslitaleik Copa America gegn Síle.

Mercado í úrslitaleik Copa America gegn Síle.

Canon

Mynd: Getty Images

Argentínski varnarmaðurinn Gabriel Mercado, sem endaði í öðru sæti með Argentínu á Copa America í sumar, er genginn til liðs við Evrópudeildarmeistara Sevilla.

Mercado er 29 ára gamall og getur spilað sem hægri bakvörður og miðvörður. Hann á 10 landsleiki að baki fyrir Argentínu og hefur gert 2 mörk í þeim.
Mercado hefur aldrei leikið utan Argentínu og er þekktur sem einn af betri varnarmönnum í sögu argentínska boltans.

Kaupverð var ekki tilgreint en leikmaðurinn kemur frá River Plate þar sem hann hefur verið í lykilhlutverki síðustu fjögur ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.