Fotbolti.net
05.08.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Robbie Keane semur við meistarana á Indlandi (Staðfest)

Robbie Keane er búinn að finna sér nýtt lið.

Robbie Keane er búinn að finna sér nýtt lið.

Canon

Mynd: Getty Images

Robbie Keane hefur ákveðið að fara ekki aftur til Englands. Birmingham hafði áhuga á því að fá hann, en hann er búinn að finna sér nýtt lið og það er ekki Birmingham City.

Keane er farinn til Indlands að spila fótbolta.
Hann hefur samið við Atletico de Kolkata, sem eru ríkjandi meistarar í Indlandi. Þjálfari liðsins er Teddy Sheringham.

Keane hefur verið að leita sér að nýju liði frá því í nóvember síðastliðinum, en þá yfirgaf hann LA Galaxy í Bandaríkjunum.

„Að fá að upplifa nýja deild og menningin í Asíu höfðaði til mín,\" sagði Keane eftir að hafa skrifað undir.

Hinn 37 ára gamli Keane hefur spilað með Leeds United, Tottenham, Liverpool og fleiri liðum á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.