Fotbolti.net
05.08.18 - 13:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ben Gibson til Burnley (Staðfest)

Ben Gibson til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Burnley

Miðvörðurinn Ben Gibson er kominn til Burnley frá Middlesbrough.
Hinn 25 ára gamli Gibson kemur til Burnley fyrir 15 milljónir punda og er hann dýrasti leikmaður í sögu félagsins, ásamt sóknarmanninum Chris Wood sem var keyptur frá Leeds í fyrra. Gibson skrifar undir fjögurra ára samning.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Burnley kaupir í sumar.

Gibson hefur verið lykilmaður í liði Middlesbrough síðustu ár og hefur hann þrisvar verið kallaður upp í enska landsliðshópinn. Hann á hins vegar eftir að leika landsleik.

Jóhann Berg Guðmundsson er á mála hjá Burnley, sem endaði í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Burnley sigraði Aberdeen í forkeppni Evrópudeildarinnar á dögunumum og mætir Istanbul Basaksehir í næstu umferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.