Fotbolti.net
05.08.18 - 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Maldini snýr aftur til AC Milan (Staðfest)

Maldini lék meira en 900 leiki fyrir AC Milan á ferli sínum.

Maldini lék meira en 900 leiki fyrir AC Milan á ferli sínum.

Canon

Mynd: Getty Images

Paolo Maldini, ein mesta goðsögn í sögu AC Milan, er kominn aftur til félagsins. Þetta var staðfest í dag.
Maldini, sem var lengi fyrirliði AC Milan, hætti í fótbolta árið 2009 en síðan þá hefur margoft verið reynt að fá hann til starfa hjá félaginu.

Nú hefur það loksins tekist og mun hann vinna náið með Brasilíumanninum Leonardo sem sneri einnig aftur til Milan á dögunum. Leonardo er yfirmaður knattspyrnumála og mun Maldini vinna náið með Brasilíumanninum.

Í yfirlýsingu hjá AC Milan segir framkvæmdastjóri félagsins, Paolo Scaroni: „Ráðning Paolo er mikilvægur liður í því að koma AC Milan á þann stað sem félagið á að vera.\"

Starfstitill Maldini er: Sporting Strategy & Development Director.

Nýir eigendur tóku yfir AC Milan í síðasta mánuði og þeir ætla að koma félaginu aftur á þann stað sem það var eitt sinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.