Fotbolti.net
05.08.18 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rachid Ghezzal til Leicester (Staðfest)

Rachid Ghezzal er kominn til Leicester.

Rachid Ghezzal er kominn til Leicester.

Canon

Mynd: Getty Images

Leicester var að ganga frá kaupum á alsírska kantmanninum Rachid Ghezzal frá Mónakó.

Kaupverðið er talið hljóma upp á 10 milljónir punda.
Þessi 26 ára gamli Alsírbúi gerir fjögurra ára samning við Leicester en þar mun hann hitta knattspyrnustjórann Claude Puel, sem þjálfaði Lyon þegar Ghezzal var að koma upp úr akademíunni þar.

Mónakó fékk Ghezaal á frjálsri sölu á síðasta tímabili en hann spilaði aðeins níu leiki á tímabilinu og skoraði eitt mark.

Mónakó ákvað að losa sig við Ghezaal og er hann kominn núna til Leicester. Þar mun hann leysa landa sinn, Riyad Mahrez af hólmi. Mahrez fór til Manchester City fyrr í sumar.

Það verður erfitt að fylgja í fótspor Mahrez en Ghezzal ætlar að reyna sitt besta. „Ég er mjög spenntur og mjög ánægður að vera kominn hingað,\" sagði Ghezzal við komuna til Leicester.

📝 #lcfc have agreed terms with AS Monaco for the transfer of winger Rachid Ghezzal!

➡️ https://t.co/9SeDLiSGay#WelcomeGhezzal pic.twitter.com/Md1GMzarCE

— Leicester City (@LCFC) August 5, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.