05.08.18 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Seedorf og Kluivert taka við Kamerún (Staðfest)

Seedorf er nýr þjálfari Kamerún.

Mynd: Getty Images

Seedorf er nýr þjálfari Kamerún.

Mynd: Getty Images
Hollendingarnir Clarence Seedorf og Patrick Kluivert eru teknir við sem landsliðsþjálfarar Kamerún.
Svíinn Sven-Göran Eriksson var í viðræðum við Kamerún en það er Seedorf sem búið er að ráða í starfið.
Seedorf hefur þjálfað AC Milan, Shenzhen í Kína og nú síðast Deportivo La Coruna á Spáni, en alltaf stoppað stutt í starfi.
Hann tekur við Kamerún af Hugo Broos, sem var rekinn eftir að honum mistókst að koma liðinu á HM í Rússlandi.
Seedorf er í fyrsta sinn að fara að þjálfa landslið en Kluivert, sem verður aðstoðarmaður hans, var aðstoðarmaður hollenska landsliðsins um tíma og stýrði um skamma stund landsliði Curacao.
Fyrsta verkefni þeirra verður að vinna Afríkukeppnina á heimavelli á næsta ári. Kamerún er ríkjandi meistari.

Patrick Kluivert.

Mynd: Getty Images