05.08.19 - 13:16
Brynjar Ingi Erluson
Adrian til Liverpool (Staðfest)

Adrian er mættur til Liverpool

Mynd: Liverpool

Adrian er mættur til Liverpool

Mynd: Liverpool
Liverpool er búið að semja við spænska markvörðinn Adrian en hann kemur á frjálsri sölu. Hann gerir tveggja ára samning með möguleika á þriðja árinu.
Adrian er 32 ára gamall og var síðast á mála hjá West Ham en hann eyddi sex árum hjá Lundúnarliðinu þar af fimm tímabil sem byrjunarliðsmaður en hann var varamaður fyrir Lukasz Fabianski á síðustu leiktíð.
Simon Mignolet yfirgaf Liverpool í gær og samdi við belgíska félagið Club Brugge og þurfti því enska liðið að hafa hraðar hendur og það var raunin.
Adrian var fenginn á frjálsri sölu og gerði hann tveggja ára samning í dag með möguleika á þriðja árinu. Hann mun leika í treyju númer 13 en Alisson var með það númer á bakinu á síðasta tímabili. Alisson verður auðvitað númer 1 á komandi tímabili.
;,Ég er auðvitað rosalega ánægður með að vera búinn að skrifa undir hjá svona stóru félagi. Ég er með mikinn metnað og ég vil vinna allt sem er hægt að vinna. Ég ætla að veita Ali (Alisson Becker) mikla samkeppni frá fyrstu mínútu og gera okkur betri," sagði Adrian við undirskriftina.

Welcome to the Reds, Adrian! 🔴🔴🔴 #LFC pic.twitter.com/bAc2UNtTKI
— Liverpool FC (@LFC) August 5, 2019