Fotbolti.net
05.08.19 - 19:32
Ívan Guðjón Baldursson

Arsenal selur Takuma Asano til Partizan (Staðfest)

Arsenal selur Takuma Asano til Partizan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal er búið að losa sig við japanska framherjann Takuma Asano. Hann gengur í raðir Partizan Belgrad fyrir rétt tæplega eina milljón punda.
Asano, sem verður 25 ára í nóvember, var fenginn til Arsenal fyrir þremur árum en fékk ekki atvinnuleyfi.

Hann var því lánaður til Stuttgart í tvö ár og skoraði 5 mörk í 45 leikjum. Á síðustu leiktíð var hann hjá Hannover og náði að skora einu sinni í sextán leikjum.

Hann á 18 A-landsleiki að baki fyrir Japan og hefur skorað 3 mörk.

Partizan er meðal bestu liða serbneska boltans og endaði í þriðja sæti á síðustu leiktíð. Frá og með árinu 2008 hefur félagið unnu efstu deild átta sinnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.