05.08.19 - 18:13
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton kaupir Maupay af Brentford (Staðfest) - Talað um metfé

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franski framherjinn Neal Maupay er orðinn leikmaður Brighton. Hann gerði 28 mörk í 49 leikjum með Brentford á síðasta tímabili.
Maupay verður 23 ára í næstu viku og hefur leikið fyrir Nice, Saint-Etienne og Brest í franska boltanum.
Hann á 35 leiki að baki fyrir yngri landslið Frakka en var síðast valinn í landsliðshóp árið 2015.
Sky Sports greinir frá því að Brighton greiði 20 milljónir punda fyrir Maupay sem myndi gera hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins.
Maupay er nokkuð fjölhæfur. Hann getur spilað framarlega á miðjunni og í sóknarlínunni.

😎 You love to see it…#MaupayMonday#BHAFC 🔵⚪️ pic.twitter.com/CtdJJ9bHPh
— Brighton & Hove Albion ⚽️ (@OfficialBHAFC) August 5, 2019