Fotbolti.net
05.08.19 - 20:22
Ívan Guðjón Baldursson

Gary Cahill kominn til Crystal Palace (Staðfest)

Gary Cahill kominn til Crystal Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enski miðvörðurinn Gary Cahill er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Crystal Palace.
Cahill er 33 ára gamall og kemur á frjálsri sölu eftir sjö ára dvöl hjá Chelsea.

Hann á 61 landsleik að baki fyrir England og spilaði 290 leiki á tíma sínum hjá Chelsea.

Þar vann hann ensku úrvalsdeildina, enska bikarinn, deildabikarinn, Meistaradeildina og Evrópudeildina.

Hann var í liði ársins í ensku úrvalsdeildinni 2014, 2015 og 2017.

Cahill er þriðji leikmaðurinn sem Roy Hodgson fær til félagsins í sumar og segist hann vilja fá minnst þrjá í viðbót fyrir gluggalok.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.