05.08.19 - 11:44
Brynjar Ingi Erluson
Harry Maguire til Manchester United (Staðfest) - Dýrasti varnarmaður heims

Harry Maguire og Ole Gunnar Solskjær við undirskrift í dag

Mynd: Manchester United

Manchester United hefur fest kaup á enska varnarmanninum Harry Maguire en hann kemur frá Leicester City fyrir 80 milljónir punda.
Maguire er 26 ára gamall miðvörður og uppalinn í Sheffield United en Hull City keypti hann á 2,5 milljónir punda árið 2014 og þá var hann seldur þremur árum síðar til Leicester fyrir 17 milljónir punda.
Hann hefur verið lykilmaður í liði Leicester síðustu tvö ár en auk þess var hann magnaður með enska landsliðinu á HM í Rússlandi á síðasta ári.
Manchester United og Leicester hafa verið í viðræðum síðustu vikur um Maguire en United ákvað að gefa eftir og greiða Leicester rúmlega 80 milljónir punda fyrir þjónustu hans.
Maguire skrifar undir sex ára samning við United með möguleika á sjöunda árinu en hann er nú dýrasti varnarmaður allra tíma. Virgil van Dijk hélt metinu frá 2018 en Liverpool keypti hann þá frá Southampton á 75 milljónir punda.

We have an important announcement to make...
— Manchester United (@ManUtd) August 5, 2019
Welcome, @HarryMaguire93 👋 #MUFC