Fotbolti.net
05.08.19 - 17:48
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Radja Nainggolan til Cagliari (Staðfest)

Radja Nainggolan er farinn til Cagliari á lán út tímabilið

Radja Nainggolan er farinn til Cagliari á lán út tímabilið

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Cagliari hefur fengið til sín belgíska miðjumanninn Radja Nainggolan á láni frá Inter út þetta tímabil.
Nainggolan er 31 árs gamall og þekkir vel til hjá Cagliari en hann lék með liðinu frá 2010 til 2014 er hann gekk til liðs við Roma.

Hann hjálpaði svo Inter að komast í Meistaradeild Evrópu fyrir þetta tímabil en þegar Antonio Conte tók við liðinu var ljóst að Nainggolan átti enga framtíð hjá félaginu.

Hann er lánaður til Cagliari út þetta tímabil en félagið fær kaupréttinn á honum.

Nainggolan hætti þá með belgíska landsliðinu á síðasta ári er hann var ekki valinn í hópinn fyrir HM í Rússlandi en hann spilaði 30 leiki og skoraði 6 mörk fyrir Belgíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.