Fotbolti.net
05.09.26 - 13:07
Brynjar Ingi Erluson

Sunneva og FCK á skrið - Emelía skoraði í markaveislu

Sunneva Hrönn og stöllur hennar unnu annan leikinn í röð

Sunneva Hrönn og stöllur hennar unnu annan leikinn í röð

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir og stöllur hennar í FCK unnu annan leik sinn í dönsku úrvalsdeildinni er liðið marði 1-0 sigur á ASA Aarhus í dag.
Nýliðar FCK töpuðu fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni en fögnuðu sínum fyrsta sigri gegn erkifjendunum í Bröndby í síðustu umferð.

Þær fylgdu þeim sigri eftir með 1-0 sigri á Aarhus í dag. Sunneva kom inn af bekknum í síðari hálfleik en FCK er nú með sex stig í 8. sæti deildarinnar.

Emelía Óskarsdóttir skoraði í grátlegu 6-4 tapi Köge fyrir Nordsjælland á heimavelli.

Hún kom Köge í 4-2 á 54. mínútu en gestirnir sneru leiknum við með þremur mörkum á átta mínútum og bættu svo sjötta markinu við undir lokin.

Rebekka Sif Brynjarsdóttir kom inn af bekknum hjá Nordsjælland sem er í 3. sæti með 13 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Köge.

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var í byrjunarliði RB Leipzig í 1-1 jafntefli við Hamburger SV í þýsku deildinni. Leipzig nældi þar í sitt fyrsta stig á tímabilinu í þriðju tilraun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.