05.09.26 - 12:04
Brynjar Ingi Erluson
Sonur Robinho nýr liðsfélagi Mikaels Egils (Staðfest)

Mynd: Genoa

Mynd: Genoa
Brasilíski táningurinn Robinho Jr gekk í raðir ítalska félagsins Genoa á láni frá Santos undir lok gluggans. Hann er sonur fyrrum fótboltamannsins Robinho.
Robson Junior, betur þekktur sem Robinho Junior, er 18 ára gamall og talinn mikið efni.
Hann lék 27 leiki með aðalliði Santos áður en hann gekk á dögunum til liðs við Genoa á láni. Þar verður hann liðsfélagi Mikaels Egils Ellertssonar sem hefur leikið með félaginu síðastliðið eitt og hálft ár.
Genoa hefur kauprétt á leikmanninum en hann var ekki í hópnum gegn Como um helgina.
Margir kannast eflaust við föður hans, Robinho, sem lék meðal annars með Real Madrid, Manchester City og AC Milan. Hann skoraði 28 mörk í 100 landsleikjum fyrir Brasilíu.
Robinho var árið 2017 dæmdur í níu ára fangelsi fyrir þátt sinn í hópnauðgun á albanskri konu á skemmtistað í Mílanó árið 2013. Hann hóf afplánun í Brasilíu í mars 2024.

???????? Robinho Jr è rossoblù ???????? pic.twitter.com/DckLV92aOp
— Genoa CFC (@GenoaCFC) September 3, 2026