Rýnt í 22. umferðina - Fjögur lið berjast um sæti í efri hluta
Lokaumferð deildarkeppninnar ekki öll á sama tíma

Deildinni skipt í efri og neðri hluta eftir leikina á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Öfug KRÍA upp á Skaga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Víkingur pakkaði Fram saman í fyrri leik liðanna í deildinni.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Valur og Keflavík mætast á Ljósanótt í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þór tekur á móti FH í fallbaráttuslag.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Deildinni skipt í efri og neðri hluta eftir leikina á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir tvískiptingu spila liðin í 1.-6. sæti einfalda umferð sín á milli og sömuleiðis liðin í 7.-12. sæti.

Víðir Sig: Hverjir mætast í lokin? - KA eða Þór á heimavelli? - Áfangar hjá Alex og Óla
Keflavík situr í 5. sæti Bestu deildarinnar og tryggir sæti sitt í efri hlutanum með sigri. Sigur setur Keflavík upp fyrir Breiðablik í 4. sætinu, allavega fram á morgundaginn. Valur, sem er í 8. sæti, verður að vinna í dag til að eiga möguleikann á að enda í efri hlutanum. Valur þarf að vinna og treysta á að bæði Stjarnan og ÍA tapi sínum leikjum á morgun. Stjarnan og ÍA munu því vita á morgun hvort það sé hægt að ná Keflavík fyrir tvískiptingu eða ekki.
laugardagur 5. september
16:30 Keflavík-Valur (HS Orku völlurinn)
HInir fimm leikirnir í deildinni hefjast klukkan 14:00 á morgun.
Á Víkingsvelli er toppleikur umferðarinnar þar sem 1. sætið og 3. sætið spila innbyrðis. Víkingur er með átta stiga forskot á 2. og 3. sætið þegar sex umferðir eru eftir af mótinu. Það gefur auga leið að öll lið vilja vinna alla leiki, en með sigri Fram kæmi liðið sér í möguleikann á 2. sætinu. Það færi þá eftir því hvort KR misstígi sig á Akranesi gegn ÍA á sama tíma. Liðin sem enda í 1. og 2. sæti mætast innbyrðis í 27. umferð á heimavelli Víkings.
Á Akureyri fara fram tveir leikir á morgun. KA og Breiðablik eru tvö af köldustu liðum deildarinnar. Breiðablik er út af markatölu sinni öruggt með sæti í efri hlutanum, en leikmenn og þjálfarar vilja eflaust sjá jákvæða frammistöðu þar sem næsti leikur á eftir er sjálfur bikarúrslitaleikurinn gegn Aftureldingu næsta föstudag. KA er í botnsæti deildarinnar og vill augljóslega spyrna sér þaðan. Með sigri getur KA farið upp í 10. sætið.
Það hefur verið rætt og ritað um að það sé betra að enda í 10. sæti en 11. sæti þar sem 11. sætið fær heimaleiki gegn 10. og 12. sætinu í neðri hluta umspilinu. En auðvitað vilja liðin hafa eins mörg stig og mögulegt er áður en deildinni er tvískipt. Þór er í 10. sætinu og það breytist ekki þótt liðið sigri FH á morgun, en þrjú stig væru mjög mikilvæg fyrir liðið. FH er í 9. sætinu og gæti náð 8. sætinu ef liðið sigrar og markatalan sveiflast með Hafnfirðingum um helgina. FH hefur einungis tapað einum leik síðan í maí.
Í Miðgarði fær Stjarnan lið Eyjamanna í heimsókn. Jafntefli gæti dugað Stjörnunni til að ná sæti í efri hlutanum en það færi eftir úrslitunum úr leikjum Vals og ÍA. ÍBV er í 11. sæti og er án sigurs í tvo mánuði. Með sigri getur liðið komist upp í 10. sætið.
Það verður svo mjög athyglisverður leikur á Akranesi þar sem ÍA þarf mjög líklega að ná í sigur til að halda sæti sínu í efri hlutanum. Á sama tíma vilja KR-ingar halda smá pressu á Víkingum og halda 2. sætinu. jafntefli dugar ÍA ef Stjarnan vinnur ekki ÍBV.
Hér að neðan má hlusta á upphitun fyrir umferðina í Útvarpsþættinum Fótbolti.net
sunnudagur 6. september
14:00 Stjarnan-ÍBV (Miðgarður)
14:00 Þór-FH (VÍS völlurinn)
14:00 ÍA-KR (ELKEM völlurinn)
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
14:00 KA-Breiðablik (Greifavöllurinn)

Öfug KRÍA upp á Skaga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Víkingur pakkaði Fram saman í fyrri leik liðanna í deildinni.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Valur og Keflavík mætast á Ljósanótt í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þór tekur á móti FH í fallbaráttuslag.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 21 | +46 | 52 |
| 2 | KR | 21 | +27 | 44 |
| 3 | Fram | 21 | +14 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 21 | +3 | 30 |
| 5 | Keflavík | 21 | -4 | 28 |
| 6 | ÍA | 21 | -4 | 27 |
| 7 | Stjarnan | 21 | -8 | 27 |
| 8 | Valur | 21 | -7 | 24 |
| 9 | FH | 21 | -11 | 21 |
| 10 | Þór | 21 | -29 | 18 |
| 11 | ÍBV | 21 | -13 | 17 |
| 12 | KA | 21 | -14 | 17 |

