Fotbolti.net
05.10.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Alex Freyr framlengir við Fram (Staðfest)

Alex Freyr framlengir við Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn 19 ára gamli Alex Freyr Elísson er búinn að framlengja samning sinn við Fram til tveggja ára.

Alex Freyr lék 10 deildarleiki fyrir Fram í Inkasso-deildinni í sumar er félagið endaði um miðja deild með 30 stig.
„Alex Freyr er einn af efnilegri leikmönnum okkar og þótti sýna mjög góðan leik í sumar,\" stendur meðal annars í yfirlýsingu á vefsíðu Fram.

„Knattspyrnudeild Fram lýsir yfir mikilli ánægju með að tryggja sér krafta þessa efnispilts næstu tvö árin að minnsta kosti.\"

Alex er uppalinn Frammari og lék fjóra leikið fyrir meistaraflokk í fyrra eftir að hafa leikið upp yngri flokkana.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.