Fotbolti.net
05.10.16 - 14:58
Magnús Már Einarsson

Óli Jó og Bjössi Hreiðars framlengja við Val (Staðfest)

Sigurbjörn Hreiðarsson og Ólafur Jóhannesson.

Sigurbjörn Hreiðarsson og Ólafur Jóhannesson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, og Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari, hafa skrifað undir nýja samninga við félagið.

Þeir eru nú samningsbundnir Val út árið 2019.
Ólafur og Sigurbjörn tóku við Val haustið 2014 eftir að Magnús Gylfason lét af störfum.

Undir þeirra stjórn urðu Valsarar bikarmeistarar bæði í ár og í fyrra. Valur endaði einnig í 5. sæti í Pepsi-deildinni bæði í ár og í fyrra.

Óli og Bjössi þjálfuðu áður saman hjá Haukum árið 2013. Árið 2014 var Sigurbjörn þjálfari Hauka en þá var Ólafur í frí frá fótbolta.

Ólafur vann fjölda titla með FH á sínum tíma og tók síðan við íslenska landsliðinu. Sigurbjörn var fyrirliði Vals í áraraðir og vann bæði Íslands og bikarmeistaratitil með liðinu sem leikmaður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.