Fotbolti.net
05.10.16 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Warnock nýr stjóri Arons (Staðfest)

Warnock nýr stjóri Arons (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aron Einar Gunnarsson er kominn með nýjan knattspyrnustjóra hjá Cardiff City.

Neil Warnock hefur verið ráðinn stjóri eftir að Paul Trollope var rekinn í gær.

Hinn 67 ára gamli Warnock er gríðarlega reynslumikill en hann hefur meðal annars stýrt Crystal Palace, QPR, Leeds og Sheffield United á ferlinum.
Warnock var síðast hjá Rotherham en hann ákvað að hætta eftir að hafa bjargað liðinu frá falli úr Championship deildinni síðastliðið vor.

Cardiff hefur verið í basli í ensku Championship deildinni í byrjun tímabils en liðið er í næstneðsta sæti með einungis tvo sigra í fyrstu ellefu leikjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.