Fotbolti.net
05.10.17 - 16:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bjarni og Kristján Finnboga með Rúnari hjá KR (Staðfest)

Bjarni er mættur aftur í Vesturbæinn.

Bjarni er mættur aftur í Vesturbæinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Rúnar Kristinsson er búinn að finna sitt þjálfaralið hjá KR.

Rúnar sneri aftur í Vesturbæinn og hann er búinn að fá kunnuleg andlit í þetta verkefni með sér.
Bjarni Guðjónsson verður aðstoðarþjálfari, en hann var aðstoðarþjálfari Loga Ólafssonar hjá Víkingi R. á nýliðnu tímabili.

Rúnar og Bjarni þekkjast vel. Bjarni lék fyrir Rúnar er hann þjálfaði KR hér áður fyrr og var auk þess fyrirliði liðsins. Bjarni tók við KR þegar Rúnar hætti og stýrði því til 2016.

Bjarni er mættur aftur og sömuleiðis Kristján Finnbogason. Kristján verður markvarðarþjálfari KR.

Kristján Finnbogason lagði hanskana á hilluna á síðasta ári en hann lék lengst af með KR á leikmannaferli sínum. Hann spilaði þar sína fyrstu meistaraflokksleiki árið 1989.

Kristján lék samfleytt með KR til ársins 2008 fyrir utan árin 1992 og 1993 þegar hann var á mála hjá ÍA. 2009 til 2011 var Kristján í markinu hjá Gróttu áður en hann fór í Fylki og þaðan í FH fyrir sumarið 2014. Hann lagði síðan hanskana á hilluna í fyrra.

Uppfær 17:30 - Arnar Gunnlaugsson og Henrik Bödker eru hættir hjá KR. KR-ingar þakka þeim fyrir góð störf.

Þjálfarateymi KR er klárt!⚽️
Ásamt Rúnari verður Bjarni Guðjónsson aðstoðarþjálfari og Stjáni Finnboga Markmannsþjálfari 🙊 🐐🐐🐐 pic.twitter.com/qZoYFDVmsQ

— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) October 5, 2017


KR þakkar Henrik Bødker, einum sterkasta og skemmtilegasta karakter sem starfað hefur fyrir stórveldið og Arnari G, what a man fyrir árin 😊✨

— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) October 5, 2017


í leiðinni þökkum við Willumi Þór fyrir hans störf og óskum þeim öllum góðs gengis í komandi störfum! ⚽️👊🏻

— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) October 5, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.