Fotbolti.net
05.10.17 - 15:15
Arnar Daði Arnarsson

Callum Williams framlengir við KA (Staðfest)

Callum Williams framlengir við KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breski varnarmaðurinn, Callum Williams hefur skrifað undir nýjan samning við KA sem gildir næstu tvö árin. Þetta staðfestir KA á heimasíðu sinni.
Callum gekk til liðs við KA árið 2015 og spilaði með þeim í Inkasso-deildinni í tvö sumur. Hann lék einnig með liðinu í sumar í Pepsi-deildinni og stóð vaktina í vörninni.

KA var það lið sem hélt næst oftast markinu sínu hreinu í sumar.

Callum er breskur, örvfættur miðvörður og getur einnig leikið sem bakvörður. Hann er 26 ára gamall og hefur leikið 59 leiki fyrir KA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.