05.10.17 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Martin O\'Neill og Roy Keane framlengja (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Martin O\'Neill og Roy Keane eru búnir að skrifa undir samningsframlengingu við írska landsliðið.
Tvíeykið framlengdi til 2020 en sem stendur er landsliðið í harðri baráttu við Serbíu og Wales um sæti á HM í Rússlandi.

Líklegt er að nokkrir leikir Evrópumótsins 2020 verði spilaðir á Írlandi vegna nýs fyrirkomulags og segist O\'Neill vera gífurlega spenntur fyrir framhaldinu.
„Írska knattspyrnusambandið vildi framlengja samninginn fyrir Evrópumótið og ég samþykkti,\" sagði O\'Neill.
„Ég verð að viðurkenna að ég er spenntur fyrir komandi tímum. Það komast mörg lið á lokakeppni EM og það gætu einhverjir leikir verið spilaðir í Dublin, sem er frábært.\"
Írar eru í þriðja sæti undanriðilsins, fimm stigum frá toppliði Serbíu og einu frá Wales þegar tvær umferðir eru eftir.