Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 05. október 2020 18:32
Ívan Guðjón Baldursson
Barca að selja Todibo til Benfica - Eric Garcia kemur í staðinn
Mynd: Getty Images
Barcelona er búið að samþykkja tilboð frá Benfica í varnarmann sinn Jean-Clair Todibo sem virtist vera á leið til Fulham þar til fyrir skömmu.

Todibo er ekki sannfærður um að félagaskipti til Fulham séu rétta skrefið á ferlinum en hann hefur talsvert meiri áhuga á að spila fyrir Benfica sem er meðal bestu liða portúgalska boltans.

Benfica er talið greiða tæpar 20 milljónir evra fyrir Todibo sem er tilvalið fyrir Barcelona. Börsungar vilja nefnilega ganga frá kaupum á Eric Garcia sem fyrst.

Garcia er efnilegur miðjumaður Manchester City sem á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Barca mun fá hann fyrir tæpar 20 milljónir evra.
Athugasemdir
banner
banner
banner