mán 05. október 2020 18:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Olsen maðurinn sem á að veita Pickford samkeppni
Robin Olsen.
Robin Olsen.
Mynd: Getty Images
Það eru viðræður í gangi á milli Everton og Roma um lánssamning á markverðinum Robin Olsen.

Everton var fyrr í dag orðað við markverðina Sergio Romero og Paulo Gazzaniga, en Manchester United og Tottenham voru ekki tilbúin að lána þá annað.

Olsen er þrítugur og er landsliðsmarkvörður Svíþjóðar.

Þetta eru skýr skilaboð til Jordan Pickford. Hann mun ekki komast upp með mikið fleiri mistök undir stjórn Carlo Ancelotti.

Everton hefur farið frábærlega af stað í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur unnið alla leiki til þessa og er á toppnum.
Athugasemdir
banner